










'Það er allt fullt af konum í fjallinu' heyrði Guðbrandur sagt þegar nokkrir göngumenn komu niður af Esju í kvöld (27.8.09). Ég var ein af þessum fræknu konum ásamt u.þ.b. tuttugu vinkonum. Við vorum allar að taka þátt í 'Stelpugöngu á Esju' í tilefni afmælis míns í gær. Við gengum á fjallið í frábæru veðri, logni og blíðu. Frábær stemmning. Við Guðbrandur settum upp lítið tjald niðri þar sem boðið var upp á orkudrykk í upphafi göngu og Flateyjar-franska (frönsk súkkulaðikaka ættuð úr Flatey), ásamt öðru meðlæti, eftir gönguna. Guðbrandur og Trölli græjuðu kaffið handa okkur. Hver og ein gekk á sínum hraða eins og passaði best. Ella og Áslaug komust alla leið á toppinn en við hinar héldum okkur aðeins neðar. Þetta varð alveg frábært kvöld og einstaklega skemmtileg samvera. Takk kæru vinkonur fyrir að mæta allar og gera daginn svona eftirminnilegan!
|















Þátttakendur: Mamma, Mjöll, Magga + Sigurjón Hrafn, Valdís, Þórunn, Bogga, Kía, Ingibjörg, Ragnheiður, Kristín, Birna, Þórdís, Maddý, Þura, Gunnhildur, Inga, Helga, Emma, Áslaug, Ella og ég auk Guðbrands, Tölla og MIÓ sem datt óvænt inn í kaffið í lokin. |